|
Frances rauð eirtúpa er ein allra vinsælasta túpan fyrr og síðan. Sumir veiðifélagar hreinlega taka ½” túpuna aldrei undan í veiði fyrri part sumars og í stærri ám allt sumarið.
Þungar túpur eru hnýttar á eirrör sem eru hannaðar til að sökkva vel. 1" er góð allt sumarið en 1 1/2" nýtist best í miklu vatni og til að sökkva vel. Þá er gott á vorin að bregða á það ráð að hafa hraðsökkvandi enda til að sökkva túpunum betur
Oft kemur það fyrir að veiðimönnum finnst túpurnar of þungar til að kasta með einnar handar flugustöngum. Því hnýti ég einnig léttar túpur sem hnýttar eru á áltúpur sem eru mun léttari og gott að kasta þeim með einhendum. Þær getur þú keypt annars staðar á síðunni.
|
|
Síli straumflugurnar eru gömul smíð og mikið notaðar hér áður fyrr í sjóbirtingsveiðar. Bleiku og bláu Marabou stélin gera þeir einstaklega líflegar í vatni. Bleika afbrigðið gengur mjög vel í bleikju einnig.
|
|
|
 |
|
|
Heimsfrumsýning Keilu-búkar
|
|
Í tilefni að því að frances.is er 10 ára um þessar mundir kynnum við í fyrsta sinn nýjung í fluguhönnun á laxaflugum, keilutúpa með skiptanlegum búk. Hugmyndin var að hnýta úr öllum okkar vinsælustu laxaflugum Íslands í eina flugu. Síðan er hægt að skipta út búkum að vild. Þetta eru Frances, Black Sheep, Green butt, Collie dog og Black and Blue. Þessa keilutúpu hannaði ég haustið 2006 í tilefni af því og veiðivinkona okkar Margrét Hafdís Hauksdóttir var fimmtug í einni veiðiferð okkar í Selá. Margrét eða Maddí er kona Friðriks Þ. Stefánssonar fyrrverandi SVFR formanns. Er skemmst frá því að segja að flugan sló strax í gegn og Maddí veiðir varla á aðra flugur og veiðir oftast okkur hina í kaf. Eftir þennan veiðitúr var flugan skýrð Maddí design.
Smelltu hér til að kaupa
Greinasafn
|
|
|
|
 |
|
|
Skemmtilegt bréf
|
|
Sæll Jónas
Samstilltur hópur fernra hjóna fór í árlega veiðiferð í Búðardalsá á Skarðsströnd á dögunum. Skemmst er frá því að segja að töluvert sást af laxi neðan Arnarfossins, sem er veiðistaður númer 4, en áin var svakalega vatnsmikil. Hinar ýmsu flugur voru reyndar en þó fór það svo, eins og svo oft áður að hin rauða Frances Doktorsins átti eitthvað betur uppá pallborðið hjá laxinum en aðrar flugur. Á land voru dregnir 8 laxar þar af 6 á rauða Frances keilutúbu frá Doktornum (á örtúbuna með tungsten og næstu fyrir ofan), einn á rauða Frances nr. 10 og einn á maðk. Allt voru þetta grálúsugir laxar frá 5 uppí 8 pund, spikfeitir og pattaralegir. Eitthvað misstum við af laxi, ma. einn sennilega 14-16 punda fisk í Sjávarhyl, sem losaði sig af eftir amk. 15 mínútna skemmtilega baráttu.
Ein hjón úr hópnum höfðu farið í Straumana vikunni áður ásamt fjölskyldunni og sett í 5 laxa þar, þar af tvo 82 cm. fiska, annan á spún og hinn tók bláa kröflu. Báðum var að sjálfsögðu sleppt aftur í ána. Matfiskarnir þrír tóku rauða frances keilutúbu.
Hún er skæð, rauða Frances Doktorsins!
Veiðikveðjur
Jóhann Gunnar
Fara á fréttir og veiðisögur
|
|
|
|
|
|